
Hinn hvítleiti & hvetjandi dr. Gylforce kvað upp ógurligt unaðskvein þegar hann áttaði sig á því að hann væri í tvígang á leið á leið til & frá Hveragerði. Maður lifande - loxins fékk doksi kallinn að upplifa undur Suðurlandsundirlendisins hvað vagna áhrærir.
Dr.-inn hoppaði hnarreistur að Shell skálanum í Hveragerði á laugardagskvöldið en þaðan fer vagninn. Doksi kallinn vatt sér inn í skálann til að birgja sig upp af Maxinu & ákvað að spyrjast fyrir um vagninn við afgreiðsluborðið.
Þar tók - illu heilli - við döpur raun; afgreiðsludaman hapði ekki hugmynd um hvort vagninn væri að koma eður ei, gat ekki bent doksa á neinn bækling eða veggspjald með ferðum vagnsins. M.ö.o., hún vissi ekki neitt, blessunin.
Nú er Shell skálinn í Hveragerði ekki hluti af Strætó bs. en það er helv. dapurt að geta ekki liðsinnt (eða leiðsinnt?) vagnverjum. Dr.-inn var vitaskuld búinn að athuga með ferðir en langaði að láta reyna á þjónustuna. Þar kom hann að galtómum kofanum. Hvað um það.
Leið 52 kom svo 10 mínútum of seint enda hávaðarok & leiðindafærð þetta laugardagskvöld. Doksi fékk 404 vagn þeirra Fjarðarmanna - blár & gulur að lit - & var vagnstjórinn öryggið uppmálað alla leið að Mjóddinni.
Hjá Breiðhyltingum tók við heldur leiðinleg lífsreynsla. Vagninn úr Hveragerði lenti um kl. 20:20 í Mjódd en aðrir vagnar samlagsins eru flestir með klukkutímatíðni aukinheldur sem biðstöðin er lokað kl. 18 á laugardögum. Þarna vantar alla samræmingu.
Dr.-inn mátti hírast í skítaveðri & bíða eptir leið 4 í tæpan hálftíma hvar 128 Citelis kom & færði hann í Hamraborg okkar Kópvæginga.
Dr.-inn tók svo 401 vagninn á leið 51 til Hveragerðis í gær & fékk fína ferð með urmul vagnverja um borð & ljóst að þessi leið er mikið notuð.

f
Nýju bláu/gulu vagnarnir eru ólíkt fallegri en þeir gömlu.